Menntun:
LL.M. frá Stanford Law School 2007 í Corporate Governance and Practice.
Cand. jur. frá Háskóla Íslands 1997.
Nám í vátryggingarétti og alþjóðlegum einkamálarétti við Háskólann í Árósum 1996.
Málflutningsréttindi:
Málflutningsréttindi fyrir Hæstarétti 2004.
Málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi 1998.
Starfsreynsla:
Lögmaður hjá Landslögum frá 1997.
Önnur störf:
Í stjórn Lögmannafélags Íslands frá 2019, varamaður í stjórn félagsins 2017-2019.
Formaður eftirlitsnefndar með starfsemi Íslandspósts samkvæmt ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 8/2017 frá 2017.
Sat í siðareglunefnd Lögmannafélags Íslands 2016-2019.
Skipaður varaformaður úrskurðarnefndar raforkumála frá 2011.
Í laganefnd Lögmannafélags Íslands 2008-2012.
Settur nefndarmaður ad hoc 2011 í nefnd um dómarastörf samkvæmt lögum nr. 15/1998.
Í stjórn Íslandsdeildar Amnesty International 2000-2004.
Kennsla:
Kennsla í fullnusturéttarfari við Háskólann í Reykjavík frá 2014.
Kennsla á námskeiði til öflunar réttinda til að vera héraðsdómslögmaður frá 2008.
Umsjónarmaður og leiðbeinandi meistararitgerða við Háskóla Íslands frá 2010.
Umsjónarmaður og leiðbeinandi með B.A. ritgerðum við Lagadeild Háskóla Íslands 2005-2006.
Stundakennari í skaðabótarétti við Háskólann í Reykjavík 2005.
Kennsla í samningarétti á meistarastigi við Viðskiptaháskólann á Bifröst haustið 2004.
Stundakennsla í skaðabótarétti og leigurétti við Lagadeild Háskóla Íslands haustið 1999.
Umsjónarmaður og leiðbeinandi meistararitgerðar við Háskólann í Reykjavík 2008.
Hefur haldið nokkur námskeið í samningagerð og samningahagfræði við Endurmenntun Háskóla Íslands.
Kennsla í samningagerð og samningahagfræði á námskeiðum um mannvirkjagerð við Endurmenntun Háskóla Íslands 2010 og 2011.
Ritstörf:
„Viðhorf almennings til lögfræðinga“, meðhöfundur, Úlfljótur 4. tbl. 1995.
„Stutt ágrip í vátryggingarétti“, birt á www.rettur.is.
„Handalögmál og ábyrgðartakmarkanir í skilmálum vátrygginga“ Lögmannablaðið, 2. tbl. maí 2001.
„Ónákvæmni í dómsorði“, Lögmannablaðið, 1. tbl. mars 2002.
„Ábyrgðartakmarkanir í skilmálum vátrygginga og ófrávíkjanlegar reglur laga nr. 20/1954 um vátryggingarsamninga“, Tímarit lögfræðinga, 1. hefti 2004.
„Upphaf fyrningarfrests samkvæmt 99. gr. umferðarlaga nr. 50/1987“, Afmælisrit – Viðar Már Matthíasson sextugur 16. ágúst 2014, Reykjavík 2014.
Helstu sérsvið: Samningagerð, samrunar og yfirtökur, fjármunaréttur, kröfuréttur, vátryggingaréttur, skaðabótaréttur og málflutningur.
Tölvupóstur: vidar@landslog.is