Svikapóstur í nafni Landslaga

birt 18. október 2024

Töluverður fjöldi fólks hefur haft samband við skrifstofu Landslaga að undanförnu vegna tölvupósts eins og þessa hér til hliðar, sem sagður er sendur í nafni Landslaga. Um er að ræða svikapóst sem ekki er sendur í nafni Landslaga. Viðtakendur póstsins eru hvattir til að eyða póstinum og í engum kringumstæðum ýta á hlekki í póstinum eða bregðast við efni hans að öðru leyti.