Tilgangur félagsins er að höfða mál til viðurkenningar á skaðbótaskyldu fyrir hönd félagsmanna á hendur Björgólfi Thor Björgólfssyni vegna tjóns félagsmanna af hlutabréfaeign þeirra í Landsbanka Íslands hf. Verði skaðabótaskylda viðurkennd mun félagið einnig sækja skaðabætur fyrir félagsmenn. Félaginu er ekki heimilt að starfa við annað en málarekstur í samræmi við tilgang þess. Félagið mun reka dómsmálið í eigin nafni fyrir hönd félagsmanna og í umboði þeirra. Þrátt fyrir að málsóknarfélagið eigi aðild að málinu eru það félagsmennirnir sem hver fyrir sitt leyti eiga þá hagsmuni sem málið varðar. Félagið fer með forræði á málinu svo bindandi sé fyrir félagsmenn, þar á meðal til að fella málið niður eða ljúka því með dómssátt. Um réttindi og skyldur félagsmanna fer samkvæmt samþykktum félagsins. Sjá hér: Samþykktir málsóknarfélagsins.
Hver sá sem átti hlutabréf í Landsbanka Íslands hf. þann 7. október 2008 eða leiðir rétt frá aðila sem átti hlutabréf á þeim tíma getur sótt um aðild að félaginu og þar með tekið þátt í hópmálsókninni.
Þeir sem sækja um aðild að félaginu skuldbinda sig til að greiða félagsgjald sem eru kr. 5.000 fyrir hluthafa sem eiga 100.000 eða færri hluti í Landsbanka Íslands hf., kr. 15.000 fyrir hluthafa sem eiga 100.001 til 300.000 hluti, kr. 40.000 fyrir hluthafa sem eiga 300.001 til 500.000 hluti en 15% af nafnverði hluta þeirra hluthafa sem eiga fleiri en 500.000 hluti. Upplýsingar um fjölda hluta ættu að koma fram á skattframtali viðkomandi. Einnig er hægt að fá upplýsingar um hlutabréfaeign með því að senda tölvubréf á netfangið malsokn@landslog.is eða í síma 520 2917. Félagsgjaldið er greitt við inngöngu í félagið og er óendurkræft. Verði bótaskylda viðurkennd greiða félagsmenn að auki 10% af þeirri fjárhæð sem innheimtist eða samið er um greiðslu á í þóknun fyrir málareksturinn.
Málsóknarfélagið hefur gert samning við Landslög (www.landslog.is) um rekstur málsins og innheimtu á skaðabótum. Sjá hér: Samningur málsóknarfélagsins við Landslög.