Rætt við Vilhjálm H. Vilhjálmsson í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins
birt 16. janúar 2016
Í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins er rætt við Vilhjálm H. Vilhjálmsson lögmann á Landslögum. Vilhjálmur hefur áratuga reynslu af hagsmunagæslu fyrir einstaklinga sem lent hafa í slysum. Vilhjálmur hefur orðið var við breytt hugarfar vátryggingafélaganna sem eru meira rekin sem fjármálafyrirtæki en að minna fari fyrir þeim hugsunarhætti að tryggingafélög séu þjónustufyrirtæki sem taki við iðgjöldum og greiði þau aftur út til þeirra sem lent hafa í slysum eða óhöppum. Vátryggingar hafa það samfélagslega hlutverk að hópur fólks greiðir iðgjöld til að verja hvert annað gegn afleiðingum óvæntra áfalla. Styttri útgáfu af fréttinni má sjá hér.