Styrmir í eigendahóp Landslaga
birt 17. apríl 2017
Styrmir Gunnarsson hefur bæst í eigendahóp lögmannsstofunnar Landslaga. Þetta var samþykkt á síðast aðalfundi lögmannsstofunnar.
Styrmir lauk lagaprófi frá Háskóla Íslands árið 2009 en hóf störf með námi hjá Landslögum árið 2006. Hann hlaut málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi árið 2011.
Eiginkona Styrmis er Móeiður Júníusdóttir grunnskólakennari í Hraunavallaskóla og saman eiga þau þrjú börn. Styrmir hefur reynslu af málum á helstu réttarsviðum lögfræðinnar en hefur sérhæft sig á sviði skaðabótaréttar.
Styrmir hefur rekið fjölda skaðabótamála fyrir dómstólum með góðum árangri og lokið farsællega hundruðum skaðabótamála fyrir umbjóðendur sína.