Viðtal við Styrmi Gunnarsson hdl. í fréttamiðlum
birt 9. nóvember 2015
Fréttablaðið birtir í dag áhugaverða grein um svokallaðar PC-crash skýrslur. Um ræðir útreikning á ætluðum höggkrafti sem leysist úr læðingi við árekstur tveggja bifreiða og unnin er að beiðni vátryggingarfélaganna. Í greininni er fjallað um þá aðferðarfræði tryggingarfélaganna að hafna greiðsluskyldu á grundvelli skýrslnanna vegna líkamstjóns sem tjónþolar verða fyrir í umferðarslysum. Fréttablaðið leitaði álits Styrmis Gunnarssonar lögmanns hjá Landslögum um málið en hann hefur með góðum árangri rekið fjölda slysamála fyrir tjónþola þar sem vátryggingarfélögin beittu m.a. fyrir sig skýrslunum sem fjallað er um í grein Fréttablaðsins. Að hans mati eru PC-crash skýrslurnar ekki sönnunargagn um það hvort tjónþoli hafi orðið fyrir líkamstjóni í umferðarslysi. Greinina er að finna hér.
Lögmenn Landslaga eru sérhæfðir í líkamatjónsmálum og uppgjöri við tryggingarfélög. Vilji fólk kanna réttarstöðu sína er fyrsta viðtal án endurgjalds. Unnt er að bóka viðtal í síma 520-2900.